Um félagið

Útivistarsamtök Kársness eru félagasamtök sem voru stofnuð 3. nóvember 2025. Markmið samtakanna er að efla útivist og standa vörð um umhverfisverðmæti á Kársnesi, einkum í kringum friðaðar fjörur á svæðinu og önnur opin svæði. Samtökin munu beita sér fyrir því að vernda þau svæði á Kársnesi sem skipulögð hafa verið til útivistariðkunar fyrir hverskyns raski og nýframkvæmdum sem áhrif hafa á dýralíf og vistkerfi eða skerða notagildi svæðisins til útivistar. Félagið mun jafnframt beita sér fyrir uppbyggingu áningarstaða í tengslum við útivistarsvæði auk uppbyggingar náttúrulegra leiksvæða.