Bátaskýlið við Sunnubraut

Gamla bátaskýlið við suðurströnd Kársness er kennileiti sem margir þekkja.  Bátaskýlið var áður í eigu Haraldar Sæmundssonar. Í flæðarmálinu má sjá gömlu járnbrautarteinana sem notaðir voru til að ferja bátinn sem þar var geymdur til sjós. Slíkir teinar voru víða á suðurströnd Kársness. Bátaskýlið er minnisvarði um liðna tíma og þá sem nýttu svæðið til útivistar, og minnir á gleðina við að njóta tengsla við náttúruna. Það er merki um áhuga á sjósókn og nánd við sjávarsíðuna – stað sem er enn mikið nýttur til útivistar í dag og undirstrikar mikilvægi þess að varðveita skýlið sem lifandi tengingu við sögu og náttúru svæðisins, til að það megi áfram njóta sín í framtíðinni.