Skrifa undir áskorun

Ég skora á Kópavogsbæ að falla frá áformum um að fórna útivistarperlu Kópavogsstrandar undir eina fjölförnustu stofnhjólaleið höfuðborgarsvæðisins, heldur varðveita strandlengjuna sem friðsælt útivistarsvæði fyrir alla sem vilja njóta útivistar og náttúru. Þess í stað finna samgönguhjólreiðum aðra leið gegnum Kársnesið sem myndi jafnframt nýtast íbúum Kársness í daglegu lífi, í ferðum þeirra milli heimilis, skóla, leikskóla og annarrar þjónustu.

Áskorun