Skilmálar
Með því að smella á „Gerast félagi“ heimilar þú Útivistarsamtökum Kársness, kt. , að vista almennar upplýsingar um þig og stofna kröfu í netbanka fyrir félagsgjöldum (500 kr fyrir starfsárið 2025-2026). Krafan mun birtast í heimabankanum þínum.
Þú veitir einnig leyfi til að fá upplýsingar um hvenær krafan verður stofnuð og um viðburði á vegum Útivistarfélags Kársness. Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að hætta að fá slíkar upplýsingar eða að upplýsingum sé eytt.
Skilmálar
Með því að staðfesta heimilar þú Útivistarsamtökum Kársness að vista upplýsingarnar sem þú gefur upp og til að afhenda þær Kópavogsbæ. Þú veitir einnig leyfir til að fá sendar upplýsingar sem tengjast áskoruninni. Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að hætta að fá slíkar upplýsingar eða að upplýsingum sé eytt.

Persónuverndarstefna félagsins
Félagið heldur utan um lágmarks persónuupplýsingar félagsmanna. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að halda utan um viðburði/samskipti og félagatal ásamt reikningagerð. Upplýsingum er aldrei dreift til þriðja aðila.
Stefna félagsins um meðferð persónuupplýsinga hlýtur lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í þeim tilfellum þar sem persónulegar upplýsingar eru skráðar svo sem vegna félagsaðildar eða skráningar á viðburði og gefnar eru upp persónuupplýsingar mun félagið sjá til þess að upplýsingarnar séu geymdar á öruggan hátt og aldrei gefnar upp til þriðja aðila eða notaðar í öðrum tilgangi án samþykkis viðkomandi.