Skilmálar
Skilmálar

1.gr.
Félagið heitir Útivistarsamtök Kársness.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að efla útivist á Kársnesi í Kópavogi og standa vörð um umhverfisverðmæti á svæðinu, einkum í kringum friðaðar fjörur á svæðinu og önnur opin svæði. Einnig er tilgangurinn að vernda þau svæði á Kársnesi sem skipulögð hafa verið til útivistariðkunar fyrir hverskyns raski og nýframkvæmdum sem áhrif hafa á dýralíf og vistkerfi eða skerða notagildi svæðisins til útivistar. Félagið mun jafnframt beita sér fyrir uppbyggingu náttúrulegra leiksvæða. Ennfremur að efla vitund íbúa á Kársnesi um umhverfismál og mikilvægi vistkerfa. Þá hyggst félagið reyna að hafa áhrif á stefnumótun og ákvarðanir opinberra aðila, svo sem í tengslum við skipulagsvinnu, í þágu náttúruverndar og útivistar á Kársnesi. Um er að ræða félag sem ekki er í atvinnurekstri og skal starfssemi félagsins fjármögnuð með félagsgjöldum og frjálsum framlögum félagsmanna.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fræðslustarfi, hverskyns útgáfu á fræðsluefni, námskeiðshaldið, skipulögðum útivistarferðum og náttúruskoðun fyrir félagsmenn.
4. gr.
Hver sá sem taka vill þátt í starfi samtakanna getur orðið félagsmaður. Fullgildir félagar eru þeir sem staðið hafa skil á félagsgjöldum
5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. september ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum og tveimur varamönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.
9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í útgáfu og hvers kyns kynningarstarfssemi í þágu tilgangs félagsins. Félagsmenn njóta ekki undir neinum kringumstæðum fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins.
10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins þann 3. nóvember 2025.