Yfir 500 einstaklingar hafa nú þegar skrifað undir áskorun til Kópavogsbæjar um að falla frá áformunum um að fórna útivistarperlu Kópavogsstrandar undir eina fjölförnustu stofnhjólaleið höfuðborgarsvæðisins, heldur varðveita strandlengjuna sem friðsælt útivistarsvæði fyrir alla sem vilja njóta útivistar og náttúru. Þess í stað finna samgönguhjólreiðum aðra leið gegnum Kársnesið sem myndi jafnframt nýtast íbúum Kársness í daglegu lífi í ferðum þeirra milli heimilis, skóla, leikskóla og annarrar þjónustu.
Fulltrúar Útivistarsamtaka Kársness fóru á fund Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra mánudaginn 2. febrúar og afhentu undirskriftarlista.
Mynd:
Helgi Björnsson, f.h. Útivistarsamtaka Kársness
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs
Sigurborg Arnarsdóttir, f.h. Útivistarsamtaka Kársness
