Aðalfundur Útivistarsamtaka Kársness verður haldinn 9. október 2026 kl. 16:30 í Huldustofu í Bókasafni Kópavogs.
Dagskrá fundarins verður samkvæmt samþykktum félagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Útivistarsamtaka Kársness
Kópavogi, 24. september 2026