Umsögn Útivistarsamtaka Kársness um tillögu að nýju deiliskipulagi Kársnesstígar

Útivistarsamtök Kársness sendu inn umsögn í Skipulagsgátt varðandi deiliskipulagstillögu um stofnstíg meðfram suðurströnd Kársness.


Útivistarsamtökin telja að það sé vanhugsað að fórna einstöku útivistarsvæði við friðaða strönd fyrir slíkan stofnstíg og telja að tillagan sem var kynnt sé óásættanleg m.t.t:
– Útivistar, náttúruverndar og núverandi notkunar á svæðinu
– Hraða og öryggis fyrir alla notendur
– Valkostagreiningu og samanburði valkosta ábótavant
– Umhverfisvænna samgangna innan hverfis
– Villandi framsetningar á stuðningi við Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna

Útivistarsamtök Kársness leggjast alfarið gegn þessari tillögu og fara fram á að að bæjaryfirvöld falli frá áformum um að fórna útivistarperlu Kópavogsstrandar undir eina fjölförnustu stofnhjólaleið höfuðborgarsvæðisins og standi við yfirlýsta framtíðarsýn bæjarins um umhverfislega og samfélagslega ábyrgð og skoða fyrir alvöru aðra kosti sem ekki ganga á náttúru og græn svæði. Þess í stað finna samgönguhjólreiðum aðra leið gegnum Kársnesið sem myndi jafnframt nýtast íbúum Kársness í daglegu lífi, í ferðum þeirra milli heimilis, skóla, leikskóla og annarrar þjónustu.


Útivistarsamtök Kársness leggja til að stígurinn meðfram Suðurströnd Kársness verði formlega skilgreindur sem yndisstígur og allt skipulag svæðisins miði að því að fegra og
bæta svæðið með tilliti til náttúruupplifunar og fræðslu, þar sem almenn útivist, öryggi, ró og náttúra eru í forgangi.

Í tenglsum við deiliskipulagstillöguna fengu Útivistarsamtök Kársness VSB Verkfræðistofu til að gera hjólanetsgreiningu fyrir Kársnesið og Pál Líndal doktor í umhverfissálfræði til að gera greiningu á svæðinu. Þessi gögn voru send með umsögn
Útivistarsamtaka Kársness í Skipulagsgátt.