Kynningarfundurinn 26.11.2025: Tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígar

Þann 26. nóvember sl. var haldinn opinn kynningarfundur á vegum Kópavogsbæjar um tillögu að nýju deiliskipulagi Kársnesstígar á sunnanverðu Kársnesi. Salur safnaðarheimilis
Kópavogskirkju var þétt setinn og augljóslega margir sem hafa áhyggjur af hugsanlegum neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar með tilliti til ásýndar strandlengjunnar, friðsældar og öryggis viðkvæmra hópa.

Fulltrúar bæjarins greindu frá því að stígurinn meðfram ströndinni væri ekki hugsaður fyrir hraða hjólaumferð og að æskilegt væri að hraðari hjólaumferð myndi fara aðra leið. Á sama tíma er stígurinn skilgreindur sem samgöngustofnstígur þar sem hönnun miðar við 25 km/klst og reiknað með að stígurinn verði jafnvel einn fjölfarnasti hjólastígur höfuðborgarsvæðisins. Við spyrjum okkur hvernig þessi jafna gangi upp?

Það er skýr krafa frá íbúum sem voru á fundinum
að Kópavogsströnd verði varðveitt sem friðsælt útivistarsvæði fyrir gangandi og rólega hjólaumferð. Það kom einnig skýrt fram að íbúar hafa þungar áhyggjur af því að það muni reynast erfitt að stýra hraða hjóla og annarra smáfarartækja. Það mun reynast erfitt að uppfylla kröfur um góðan samgönguhjólastíg og öruggan, friðsælan útivistarstíg
á sama tíma þar sem plássið er takmarkað og lítill aðskilnaður á milli akgreina.

Það er hætt við að stofnhjólastígur meðfram ströndinni með raunverulegum hraðahindrunum muni ekki standast þær væntingar sem gerðar eru til hans sem samgöngustígs. Á sama tíma, ef hjólaumferð margfaldast og hraði eykst þá er hætt við að það dragi úr öryggis upplifun og ánægju þeirra sem nýta svæðið til útivistar. Þarna stangast á mismunandi
þarfir sem er sennilega aðalástæða ósættis.

Aðskilinn hjólastígur meðfram Kópavogsbraut gæti verið betri kostur sem samgöngustígur heldur en strandstígur með hraðahindrunum. Slíkur hjólastígur myndi jafnframt þjóna Kársnesbúum betur og uppfylla betur markmið Aðalskipulags Kópavogs um að styrkja vistvæna samgöngumáta milli heimila, skóla, verslana, leikskóla, biðstöðva strætó og annarrar þjónustu.