Borgarholt

Borgarholt, einnig kallað Borgir, var friðlýst sem náttúrusvæði árið 1981. Þar gefur að líta óvenju glöggar menjar um sjávarstöðu á höfuðborgarsvæðinu eins og hún var skömmu eftir lok síðustu ísaldar fyrir um 10.000 árum. Grágrýtishnullungar einkenna holtið og hin forna sjávarstaða sést við neðri mörk hnullunganna á holtinu. Gróðurfar á Borgarholti er ekki síður athyglisvert en þar er að finna um fjórðung tegunda í flóra Íslands. Stærð 4,1 ha.