Aðalskipulag Kópavogs

Samfélagið, samgöngur og útivist

  • Sívaxandi krafa fólks um fjölbreytta útivistarmöguleika og nánd við náttúru verður mætt með úrbótum í eldri byggð og góðum tengingum eldri og nýrri hverfa við náttúru og útivistarsvæði.
  • Allir íbúar hafi aðgang að góðum útivistarsvæðum í göngufæri frá heimilum sínum í samræmi við heimsmarkmið 11.7 um örugg og aðgengileg græn svæði.
  • Skapaðar verði aðstæður fyrir alla aldurshópa til heilsuræktar, íþrótta og tómstundarstarfs og útivistar.
  • Unnið verði markvisst að því að byggja upp samfélag sem einkennist af gæðum byggðar, góðum tengingum við útivistarsvæði og þjónustu við íbúa sem er byggð upp með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi og komandi kynslóða. Að íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að þjónustu í bænum og bæjarbúar geti notið sín við íþróttaiðkun og útivist í sínu hverfi.
  • Hugað verði að aðgengi að stígum, opnum svæðum og leiksvæðum í samræmi við heimsmarkmið 11.7 um aðgengi að öruggum grænum svæðum.
  • Stuðlað verði að vistvænum samgöngum og möguleikar fólks til að velja á milli einkabílsins og annars ferðamáta auknir. Um leið verði reynt að draga úr áhrifum samgangna á umhverfið í samræmi við heimsmarkmið 9.1. um jafnt aðgengi að sjálfbærum og sveigjanlegum innviðum.
  • Stuðlað verði að vistvænum samgöngum, góðum almenningssamgöngum og Borgarlínu (hágæðaalmennings samgöngum) samhliða þéttingu byggðar. Samtímis verði reynt að draga úr áhrifum samgangna á umhverfið í samræmi við heimsmarkmið 9.1 um jafnt aðgengi að sjálfbærum og sveigjanlegum innviðum og 11.2 um öruggar og sjálfbærar samgöngur.
  • Auka þekkingu á þeim þáttum sem hafa áhrif á geðheilsu. Lögð verður áhersla á fræðslu sem getur stuðlað að bættri vellíðan fyrir alla aldurshópa, einnig innan fyrirtækja og stofnana bæjarins í samræmi við heimsmarkmið 3.4. um aðgerðir sem stuðla að geðheilbrigði og vellíðan.
  • Lögð er áhersla á lýðræðisþátttöku, almenna lýðheilsu, geðrækt og gott aðgengi fyrir alla.
  • Stefna Kópavogsbæjar og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni eru samofin stefnu í aðalskipulags. Aðalskipulag skal styðja við sjálfbærni og stuðla þannig að markmiðum heimsmarkmiðanna.

Markmið fyrir Kársnes

Í samræmi við meginmarkmið aðalskipulagsins og hverfisáætlanir um sjálfbærni hverfa, vistvænar samgöngur og aukin gæði byggðar eru eftirfarandi markmið sett fram um Kársnes:

 Vistvænt og lýðheilsuvænt Kársnes

  • Á Kársnesi skal stuðla að því að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar og auka sjálfbærni með vistvænum áherslum. Leggja skal áherslu á að styrkja vistvæna samgöngumáta, hjóla og gönguleiðir og almenningssamgöngur. Stefnt er að greiðum og öruggum samgönguleiðum milli heimila, skóla, verslana, leikskóla, biðstöðva strætó og borgarlínu svo að þörf fyrir akstur innan hverfisins verði sem minnst.

 Hverfiskjarnar/nærþjónusta á Kársnesi

  • Stuðla skal að aukinni þjónustu og verslun innan hverfisins. Við staðarval fyrir þjónustu í hverfinu njóti skilgreindir hverfiskjarnar forgangs. Þrír hverfiskjarnar eru skilgreindir á Kársnesi, sjá mynd 717. Leggja skal áherslu á gott aðgengi fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur að hverfiskjörnum. Hugað skal að hjólastæðum í góðum gæðum við hverfiskjarna og aðra nærþjónustu. Markmiðið er að verslun, þjónusta og/eða önnur atvinnustarfsemi í umræddum kjörnum verði áfram til staðar á jarðhæðum. Ekki er mælt með að atvinnuhúsnæði á jarðhæðum í hverfiskjörnum verði breytt í íbúðir.

Borgarholtsbraut/Bakkabraut skilgreind(ar) sem bæjargötur.

  • Borgarholtsbraut/Bakkabraut eru skilgreindar sem bæjargötur á Kársnesi. Á bæjargötum er lögð áhersla á að bæta umhverfi götunnar, skapa heildstæða götumynd, tryggja skilyrði fyrir fjölbreytta ferðamáta og opin almenningsrými. Bæjargötur eru lykilgöturnar í hverfinu og þær skulu njóta forgangs við endurhönnun og fegrun sem almenningsrými og umferðaræð fyrir alla ferðamáta. Við endurhönnun bæjargatna og umhverfis þeirra er æskilegt að skoða þær heildstætt. 

 Yfirbragði byggðar og sérkennum hverfisins viðhaldið á afmörkuðum götureitum á Kársnesi

  • Fyrirhugaðar breytingar, á einstökum lóðum eða hluta götureita á Kársnesi, skulu ekki raska yfirbragði aðliggjandi byggðar þar sem m.a. er gætt samræmis hvað varðar götumynd, hlutföll bygginga. Þetta á hvorki við um þróunarsvæði né þar sem unnið er að nýju deiliskipulagi. Tvær heilsteyptar götumyndir hafa verið auðkenndar á Kársnesi með því markmiði að sérstaklega beri að viðhalda upprunalegu yfirbragði.