Skilmálar
Með því að smella á „Gerast félagi“ heimilar þú Útivistarsamtökum Kársness, kt. , að vista almennar upplýsingar um þig og stofna kröfu í netbanka fyrir félagsgjöldum (500 kr fyrir starfsárið 2025-2026). Krafan mun birtast í heimabankanum þínum.
Þú veitir einnig leyfi til að fá upplýsingar um hvenær krafan verður stofnuð og um viðburði á vegum Útivistarfélags Kársness. Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að hætta að fá slíkar upplýsingar eða að upplýsingum sé eytt.
Skilmálar
Með því að staðfesta heimilar þú Útivistarsamtökum Kársness að vista upplýsingarnar sem þú gefur upp og til að afhenda þær Kópavogsbæ. Þú veitir einnig leyfir til að fá sendar upplýsingar sem tengjast áskoruninni. Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að hætta að fá slíkar upplýsingar eða að upplýsingum sé eytt.
Útivistarsamtök Kársness eru félagasamtök sem voru stofnuð 3. nóvember 2025. Markmið samtakanna er að efla útivist og standa vörð um umhverfisverðmæti á Kársnesi, einkum í kringum friðaðar fjörur á svæðinu og önnur opin svæði. Samtökin munu beita sér fyrir því að vernda þau svæði á Kársnesi sem skipulögð hafa verið til útivistariðkunar fyrir hverskyns raski og nýframkvæmdum sem áhrif hafa á dýralíf og vistkerfi eða skerða notagildi svæðisins til útivistar. Félagið mun jafnframt beita sér fyrir uppbyggingu áningarstaða í tengslum við útivistarsvæði auk uppbyggingar náttúrulegra leiksvæða.